Nr. 938 11. október 2013
REGLUGERÐ um breytingu á reglugerð um einkaleyfi, nr. 477/2012.
1. gr. Eftirfarandi breyting verður á 1. málslið 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar: Í stað orðsins „teikningu“ kemur: teikningum.
2. gr. Í stað orðanna „1., 2. og 3. mgr.“ í 3. mgr. 21. gr. kemur: 1. og 2. mgr.
3. gr. Eftirfarandi breyting verður á 2. málslið 1. mgr. 37. gr. reglugerðarinnar: Í stað orðanna „6. mgr. 5. gr.“ kemur: 8. mgr. 5. gr.
4. gr. 2. málsl. 2. mgr. 96. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Upphafsdagur verndartíma miðast við
gildisdag grunneinkaleyfis en lokadagur verndartíma við þann dagafjölda sem vottorð gildir.
5. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 69. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, með síðari
breytingum, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. október 2013.
F. h. r. Valgerður Rún Benediktsdóttir.
Brynhildur Pálmarsdóttir. __________
B-deild – Útgáfud.: 25. október 2013