t3009121441.dvi
Lög um breytingu á lögum nr. 45/1997, um vörumerki, með síðari
breytingum.
1. gr. Við 35. gr. laganna bætist ný málsgrein, 3. mgr., sem orðast svo: Eigandi vörumerkis, sem hefur ekki lögheimili hér á landi, telst hafa varnarþing í Reykja-
vík í málum sem rekin eru samkvæmt lögum þessum.
2. gr. 4. mgr. 42. gr. laganna fellur brott.
3. gr. Í stað orðanna „gjöld fyrir umsóknir, endurnýjanir, afgreiðslur, endurrit o.fl.“ í 65. gr.
laganna kemur: gjöld fyrir umsóknir, endurnýjanir, afgreiðslur, endurrit, áfrýjanir o.fl.
4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á Alþingi 11. apríl 2000.