Lög um breytingu á löggjöf um hugverkaréttindi á sviði iðnaðar
vegna rafrænnar útgáfu ELS-tíðinda.
Breyting á lögum nr. 46/2001, um hönnun, með síðari breytingum. 1. gr.
Við 18. gr. laganna bætist ný málsgrein er verður 2. mgr. og orðast svo: Heimilt er að gefa ELS-tíðindi út og dreifa þeim á rafrænan hátt, þar á meðal á netinu.
Breyting á lögum nr. 45/1997, um vörumerki, með síðari breytingum. 2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. laganna: a. Lokamálsliður orðast svo: Vörumerki skulu birt í ELS-tíðindum sem Einkaleyfastofan
gefur út. b. Við greinina bætist ný málsgrein er orðast svo:
Heimilt er að gefa ELS-tíðindi út og dreifa þeim á rafrænan hátt, þar á meðal á netinu.
Breyting á lögum nr. 17/1991, um einkaleyfi, með síðari breytingum. 3. gr.
Á eftir 69. gr. laganna kemur ný grein, 69. gr. a, sem orðast svo: Allar auglýsingar og tilkynningar af hálfu Einkaleyfastofunnar, sem kveðið er á um í lög-
um þessum og birtar skulu almenningi, eru birtar í ELS-tíðindum sem Einkaleyfastofan gefur út.
Heimilt er að gefa ELS-tíðindi út og dreifa þeim á rafrænan hátt, þar á meðal á netinu.
4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á Alþingi 21. maí 2004.